Google Classroom er stafræn kennslustofa þar sem hægt er að senda verkefni á nemendur og fylgjast með framvindunni á meðan á vinnu stendur. Einnig er hægt að setja inn tilkynningar, spurningar og hlekki á vefsíður ásamt fjölmörgum öðrum hlutum. Mörg kennsluforrit tengjast beint við Classroom og senda jafnvel niðurstöður beint inn í Classroom þegar vinnu er lokið.

Classroom - Að opna og stilla

Hvernig opna ég Classroom? Hvernig bý til bekki? Hvernig ganga nemendur í bekk? Hvernig býð ég nemendum í bekkinn?

Classroom - Stillingar og útlit

Hvernig breyti ég útliti í Classroom, hvernig bæti ég við meðkennurum. Hvernig stilli ég aðgang nemenda til að commenta í bekknum?

Classroom - Verkefni búin til

Hvernig við búum til verkefni og sendum þau út til nemenda? Hvernig hengjum við skjöl og stillum aðgang að þeim?

Classroom - Yfirferð verkefna

Hvernig við förum yfir verkefni í Classroom og gefum einkunnir fyrir þau. Hvernig við commentum á skjöl og gerum verkefnabók.

Classroom - Rubrics marklisti

Hvernig við setjum Rubics/marklista við verkefni sem við leggjum fyrir í Classroom

Classroom - Yfirferð með Rubrics

Hvernig við förum yfir verkefni nemenda í Classroom með Rubics marklista

Originality Reports kynning

Originality Reports er nýr valmöguleiki í Classroom sem gerir okkur kleift að sjá verk nemenda með tilliti til hversu mikið af verkinu er tekið af netinu og er ekki frá þeim komið.

Originality Reports nemandi

Hvernig nemandinn getur nýtt sér Originality Reports til að skoða hversu mikið af efninu er tekið beint af netinu.

Originality Reports kennari

Hvernig kennarinn nýtir sér Originality Reports til að fara yfir verkefni nemenda

Fækkun tilkynninga

Hvernig við fækkum tilkynningum sem koma frá Google Classroom inn í pósthólfið okkar.

ESC
til að velja Enter til að opna Esc til að loka